Nýlagnir
- Nýlagnir í allar stærðir bygginga
- Neysluvatn, ofnakerfi og skolplagnir
- Sprinklerlagnir og gólfhitakerfi
- Plastlagnir í vatn og hitaveitu
B.Markan ehf - fagmennska, vandvirkni og góður frágangur
Reyndir pípulagningamenn fyrir nýlagnir, viðhald, viðgerðir, gólfhita, neysluvatn, hitaveitu og sérhæfðar lagnir í iðnaði.
Þjónusta
Við sinnum nýlögnum, gólfhitalögnum, neysluvatns- og hitalögnum, endurbótum, viðhaldi og viðgerðum.
Frágangur
Okkar menn nota ávallt hreinsibúnað til að tryggja að ekki sé ryk eða önnur óhreinindi eftir á vinnustað. Markmiðið er að skila vönduðum verkefnum sem við getum verið stoltir af.
Verkefni og viðskiptavinir
B.Markan hefur unnið að nýbyggingum, viðhaldi, endurbótum og sérhæfðum lagnaverkefnum fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina.
Allt frá blöndunartækjum og ofnum til baðherbergja, gólfhita og endurnýjunar lagna.
Endurnýjun skolps, drens, neysluvatns, mælagrinda og ofnakerfa.
Sérfræðiþekking í matvælaiðnaði, hótelum, þjónustuhúsnæði og iðnaði.


















Um okkur
B.Markan var stofnað árið 2001 af Böðvari Markan pípulagningameistara og hefur síðan sinnt öllum tegundum pípulagna, nýlögnum jafnt sem viðhaldi.
Fyrirtækið tekur að sér allar gerðir pípulagna fyrir einstaklinga, hvort sem skipta þarf um blöndunartæki, laga ofna, setja upp klósett eða gera upp bað og leggja gólfhita. Ekkert verk er of smátt, ekkert verk er of stórt.
Við höfum einnig unnið stærri verk fyrir hótel, fyrirtæki og aðila í opinbera geiranum. Fyrirtækið á traustan hóp viðskiptavina og sinnir nýjum og gömlum viðskiptavinum af alúð og fagmennsku.
„Frá upphafi hef ég lagt áherslu á vandaða og góða þjónustu við mína viðskiptavini. Mín nálgun byggir á fagmennsku, skilvirkni og gagnkvæmu trausti.“ - Böðvar Markan, pípulagningameistari
Gæða- og öryggismál
B.Markan starfar samkvæmt gæðahandbók og er með virka öryggishandbók sem afhent er þeim sem þurfa vegna sérstakrar þjónustu eða útboðsverka.
Allar áætlanir eru unnar í samráði við viðskiptavini. Við förum yfir verkin með verkkaupa, ráðleggjum um lagnaefni og veljum rétta leið fyrir framkvæmdina.
Verkbeiðni
Sendu okkur verkbeiðni. Við svörum fyrirspurnum skjótt og örugglega og vinnum kostnaðaráætlanir í nánu samstarfi við viðskiptavini með skilvirkni og áreiðanleika að leiðarljósi.
Viðskiptavinir okkar verða að geta treyst okkur hvort um er að ræða pípulagnir eða umsýslu persónuupplýsinga. Til að geta veitt þjónustu þurfum við að móttaka upplýsingar á borð við nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang eða símanúmer.
Upplýsingar berast í gegnum form, síma eða tölvupóst og eru aðeins notaðar til að veita umbeðna þjónustu eða nauðsynlegar upplýsingar. B.Markan vinnur aðeins með persónuupplýsingar í lögmætum tilgangi og leggur sig fram um að vernda þær.